Gamlar, brotnar hellur með grasi og illgresi- þarfnast endurnýjunnar
Það hafa langflestar gangstéttir í Grundarhverfi verið endurnýjaðar en af einhverri ástæðu eru að ég tel tveir botlangar eftir, Esjugrund 42-52 og Esjugrund 17-27. Það er mikill lýti af þessum tveim hellulögðum botlöngum sem eru með brotnar og illa farnar hellur auk illgresis.
Löngu kominn tími á að laga þessa tvo botnlanga. Þetta er allt að molna upp og steypustyrktarjárn farin að gægjast upp úr og lostna á sumum stöðum sem getur skapað hættu.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation