Það vatar fleiri bílastæði í Hólmgarð og Hæðagar þar eru tveir bletir sem getta orði að bílastæðum
Hér er sennilega átt við Hæðargarð. Í Hæðargarði, næst Réttarholtsvegi, eru bílar lagðir beggja vegna götunnar og gerir það að verkum að akstur í báðar áttir í götunni er nánast ógerningur, svo þröngt er þar. Oft skapast hætta þegar beygt er sunnan frá Réttarholtsvegi inn í Hæðargarð. Bílar verða að stoppa þvert yfir Réttarholtsveginn þegar teppa myndast í Hæðargarði. Ótrúlegt að það sé látið viðgangast að lagt sé beggja vegna götunnar þar sem engar merkingar er um bílastæði.
Mjög nauðsynlegt að fjölga stæðum! Vandamálið margfaldast svo á veturna þegar snjóruðningarnir bætast við bílaþvöguna.
Það er klárlega nóg pláss til að gera aðstöðu beggja vegna götunnar fyrir bílastæði, nú eða að hætta að leggja langsum í götunni og fara að ská-leggja öllum bílum sem nýtir plássið mun betur.
Það þarf að gera fleiri bílastæði í Hólmgarð og Hæðargerði
Sammála þarna er nóg pláss til að gera bílastæði nær hitaveitustokknum
Það þarf ekki að fjölga bílastæðum - það þarf bara að hægja á umferðinni og stoppa gegnumakstur. Þetta er íbúðargata, hámarkshraði er 30 og það á ekki að vera hægt að bruna í báðar áttir.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation