Tilvalið er að nýta skólann á kvöldin fyrir menningarmiðstöð. Miðstöðin væri klúbbur án áfengis fyrir íbúa í hverfinu. Þar væru námskeið, lýðræðislegir borgarafundir, fundir fyrir ýmsa grasrótarstarfsemi og listamenn. Í salnum væri hægt að halda viðburði. Allt væri sem ódýrast fyrir klúbbmeðlimi enda væri verið að nýta húsnæði þar sem önnur starfsemi er í gangi. Klúbbur fyrir íbúa hverfis og aðra Reykvíkinga (líka hælisleitendur og ríkisborgararéttur ekki nauðsyn), samfélagsathvarf án túrista.
Það ætti að vera sjálfsagt mál að nýta húsnæði sem ekki er í notkun svo framarlega sem það komi ekki niður á kennslu. Menningarmiðstöðvar eru hjarta í hverfum víða um heim.
Svona starfsemi væri ekki aðeins fengur fyrir hverfið, heldur fyrir borg og þjóð!
Í Reykjavík þrengir að íbúum. Til þess að vera samfélag þurfa Reykvíkingar að upplifa sig saman í rými með samborgurum sínum. Þótt ferðamenn séu velkomnir í borgina, þurfa íbúar að hafa athvarf án þeirra. Þetta er rými til þess að upplifa sig í samfélagi við nágranna sína. Gott væri að hafa miðstöð í hverju hverfi og í einhverri dagskrá miðstöðvarinnar gengju íbúar hvers hverfis fyrir. Lagt væri upp með að aðgengi væri gott fyrir hælisleitendur, innflytjendur og aðra jaðarsetta.
Hvert hverfi þyrfti að hafa sína menningarmiðstöð til þess að stuðla að samskiptum nágranna og að samfélögin innan hverfanna verði heilbrigð. Athuga þyrfti að gott aðgengi yrði fyrir alla og að allir íbúar upplifi sig velkomna.
Menningarmiðstöð í öll hverfi, gætu bæði haft aðgang að einhverjum hluta skólabygginga eða félagsmiðstöðva sem loka kl. 17.00 en eru opnar öllum á dagtíma þó kallist félagsstarf aldraðra
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation