Hvað viltu láta gera? Það væri gott að gera við göngustíginn frá Norræna húsinu og yfir á Hringbraut. Hann getur verið erfiður yfirferðar á veturna. Bera í hann möl og yfirfara allar brýr. Hvers vegna viltu láta gera það? Göngustígurinn er nokkuð viðsjárverður á veturna. Ef borið væri í hann myndi það bæta þessa gönguleið til muna. Stúdentar og allir þeir sem una gönguferðum fara reglulega þarna um. Frábærar fjórar mínútur í íslenskri náttúru.
Falin náttúruperla í Reykjavík. Hér er í raun bara spurning um lágmarksviðhald sem þar að sinna og ætti nú ekki að kosta mikið.
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]
Held að þæað að bera smá möl í stíginn minnki ekkert hálkuna á honum yfir veturinn.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation