Byggja lokað hundasvæði í Grafarvogi. Með grindverki svo að hundarnir geti verið lausir án áhyggna eigenda og bekkjum fyrir fólk að sitja á innan grindverksins.
Það er mikið af hundum í Grafarvogi en ekkert, lokað eða opið, hundasvæði
væri æðislegt að þurfa ekki að keyra í önnur hverfi höfuðborgarinnar til þess að komast í hundagerði
Væri æðislegt að geta farið með hundinn i hundagerði þar sem maður er ekki a bil
Bæta við leiktækjum fyrir hundana. Til dæmis hundafimitækjum. Það er hollt og gott fyrir hunda að æfa hundafimi eða þrautir og gæti verið gaman að hittast og æfa saman á öruggu svæði.
Sammála þessu þó ég eigi ekki hund (hann kemur bráðum) en er ekki hunda svæði á Geirsnefi ? Mætti kannski lagfæra þar eitthvað svo betur fari um fólk og hunda ? Svo mætti gera annað gerði kannski ofar í hverfinu nálægt Korpu eða Keldum kannski ?
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation