Gera nýja göngubrú yfir Elliðaá við Breiðholtsbraut þannig að gangandi og hjólandi vegfarendur eigi greiða leið frá Árbæ/Norðlingaholti í Breiðholt og Kópavog. Þessi gamla brú sem er til staðar er handónýt og algjört lýti fyrir þennan fallega dal.
Nýja brú. Ekki spurning. Hættulegar tröppur sérstaklega á veturna.
Brattinn á tröppunum er of mikill, jafnvel stálpuð börn eiga í vandræðum með að leiða hjól uppá og af brúnni
Illa farin og ljót brú. fólk/börn á hjóli og fólk með barnavagna eiga erfitt með að fara yfir brúna
Það stendur til að gera nýja brú!
Löngu kominn tími á að fara í nútímann og laga þetta svo hægt sé að hjóla og komast með barna vagna þarna með góðu móti.
mikil þörf í langann tíma.
Brúin er mistak síns tíma og passar engan veginn við þá hjólamenningu sem er í dag. það þarf að rífa þessa og steypa nýja brú í staðinn. 😇
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation